Gunnar Nelson með 10 bardaga á Íslandi

Gunnar Nelson mun berjast 10 bardaga á EVE fanfest þann …
Gunnar Nelson mun berjast 10 bardaga á EVE fanfest þann 2. maí næstkomandi.

Bardagakappinn Gunnar Nelson mun taka þátt í 10 bardögum í blönduðum bardagaíþróttum á EVE fanfest. Munu þeir fara fram 2. maí, en Gunnar mun keppa á móti starfsfólki CCP og einum leynigesti. Engin hlé verða á milli bardaga þannig að þetta mun reyna nokkuð á úthald Gunnars, en bardagarnir munu vara þangað til einn aðilinn gefst upp.

CCP hefur haldið EVE fanfest árlega síðustu ár og dregur þetta að sér hundruð aðdáenda leiksins. Hátíðin stendur yfir í þrjá daga, en starfsmenn CCP hafa verið í mikilli þjálfun upp á síðkastið til að takast á við þetta verkefni.

Notast verður við alvöru bardagahring frá Mjölni, bardagafélagi Gunnars, en starfsmenn CCP hafa verið við æfingar þar. Ragnar Eðvaldsson, skipuleggjandi bardaganna, segir að þetta sé gert í fúlustu alvöru og að stefnan sé á að hægt verði að sigra Gunnar í einhverjum bardaganna. CCP hefur lengi verið einn af helstu styrktaraðilum Gunnars.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK