Viljayfirlýsing milli Orku náttúrunnar, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur og Silicor materials hefur engin áhrif á samning milli Norðuráls og Orkuveitunnar um raforku fyrir fyrirhugað álver í Helguvík. Þetta segir Páll Erland, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, í samtali við mbl.is. Hann segir að nýlega hafi orkusamningur milli Orkuveitunnar og Landsvirkjunar runnið sitt skeið á enda og þar með hafi raforka losnað sem hafi verið hægt að semja um upp á nýtt.
Nýlega skrifuðu Silicor Material og Orka náttúrunnar upp á viljayfirlýsingu um kaup á 35 megavöttum af raforku vegna fyrirhugaðrar sólarkísilverksmiðju á Grundartanga. „Þetta er alveg óháð samningum og skuldbindingum við Norðurál,“ segir Páll.
Eins og staðan er í dag er ekki til mikil umfram orka hjá íslenskum raforkuframleiðendum, en Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar sagði nýlega að virkja þyrfti á ný ef halda ætti í frekari verkefni.
Páll segir sömu stöðu vera uppi hjá Orku náttúrunnar, en lítil umframorka er til staðar hjá þeim. Það var því ekki skrítið að margir hafi rekið upp stór augu þegar tilkynnt var um samkomulagið við Silicor og hvort það væri einhliða tilkynning frá Orkuveitunni um endalok álvershugmynda.
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, segir svo ekki vera, enda séu samningar frá 2008 enn í gildi milli Norðuráls og Orkuveitunnar um afhendingu. Þeir skuldbinda fyrirtækið til að afhenda orku frá Hverahlíð, komi til uppbyggingar álversins.
Lítið hefur þó gerst undanfarið í þeirri uppbyggingu og bent hefur verið á lágt álverð á heimsmarkaði því til stuðnings að nú sé mögulega ekki besti tíminn til uppbyggingar álvers. Viðræðum hefur þó ekki verið slitið og Bjarni segir að ekkert sólarlagsákvæði eða uppsagnarákvæði sé í samningnum. Hann telji þó réttast að Orkuveitan fari ekki í frekari uppbyggingu, nema það komi til þess að fyrirtækið þurfi að uppfylla ákvæði samningsins.