Lindex stækkar verslun í Kringlunni

Lindex í Smáralind.
Lindex í Smáralind.

Í dag hefjast framkvæmdir við stækkun verslunar Lindex í Kringlunni. Þrjú ár eru frá því að Lindex hóf starfsemi á Íslandi. Mun heildarvörulína undirfatadeildar Lindex nú standa íslenskum kúnnum til boða auk þess sem Lindex Kids mun stækka. Með breytingunni er gert ráð fyrir að starfsmenn Lindex hér á landi verði níutíu.

Stækkuð og endurbætt verslun verður opnuð laugardaginn 4. október, segir í fréttatilkynningu um málið.

Eftir stækkun verður verslunin í Kringlunni um 380 fermetrar. Lindex fagnar um þessar mundir 60 ára afmæli sínu en verslunin var stofnuð í Svíþjóð. 

„Við erum sérlega þakklát fyrir þann mikla meðbyr sem við höfum fengið með opnun Lindex Kids í Kringlunni og erum gríðarlega spennt fyrir að geta boðið upp á enn betra vöruúrval til viðskiptavina okkar, samhliða því að gera okkar frábæru undirfatadeild skil með þessum hætti,“ er haft eftir Lóu Dagbjörtu Kristjánsdóttur, umboðsaðila Lindex á Íslandi, í fréttatilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK