Þrjár lögmannsstofur sameinast

Starfsmenn Arctic lögmanna eru Haukur Halldórsson hdl., Hjörtur Örn Eysteinsson …
Starfsmenn Arctic lögmanna eru Haukur Halldórsson hdl., Hjörtur Örn Eysteinsson hdl., Leifur Runólfsson hdl. og Sigurður Árnason hdl. og Arndís Þorvaldsdóttir lögfræðingur.

Arctic lögmenn er ný lögmannsstofa sem tekið hefur til starfa að Skeifunni 17 í Reykjavík. Með stofnun stofunnar sameinast þrjár lögmannsstofur, Fullrétti lögfræðiþjónusta, RG lögmenn og HH lögfræðiþjónusta.

Sigurður Árnason, framkvæmdastjóri stofunnar, segir í tilkynningu, að Arctic lögmenn leggi áherslu á að bjóða aðgengilega og vandaða þjónustu fyrir einstaklinga í skuldamálum, fjölskyldumálum, fasteignamálum og bótamálum. Þá býður stofan fyrirtækjum alla almenna þjónustu og ráðgjöf með sérstaka áherslu á að kostnaður viðskiptavina sé fyrirsjáanlegur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK