Tveimur stjórnendum WOW sagt upp

mbl.is/Rósa Braga

Tveimur framkvæmdastjórum hjá flugfélaginu WOW Air, þeim Tómasi Ingasyni og Arnari Má Arnþórssyni, var sagt upp störfum í gær. Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi félagsins, staðfestir þetta í samtali við vefinn Túristi.is.

Hún segir að þessar breytingar séu liður í því að að fylgja lággjaldastefnunni eftir enn frekar og standa við loforðið um að bjóða ávallt lægstu fargjöldin.

Tómas var forstöðumaður viðskiptaþróunarsviðs WOW Air og hóf störf í byrjun árs. Arnar Már tók við starfi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs í maí síðastliðnum. Í frétt Túrista segir að bæði Arnar og Tómas hafi langa reynslu frá Icelandair en hafi horfið til annarra starfa áður en þeir tóku við framkvæmdastjórastöðunum hjá WOW.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK