HB Grandi samdi um smíði þriggja ísfisktogara

Samningar um smíði þriggja nýrra ísfisktogara fyrir HB Granda voru undirritaðir á föstudag. Samningarnir hljóða upp á 43.950.000 evrur eða um 6,8 milljarðar króna og er áætlað að fyrsta skipið verði afhent í maí 2016, næsta síðla árs 2016 og það þriðja vorið 2017.

Á vefsvæði HB Granda segir að nýju skipin muni leysa af hólmi þrjá togara sem nú eru í rekstri, þ.e. Ásbjörn RE, Otto N. Þorláksson RE og Sturlaug H. Böðvarsson AK. „Með nýju skipunum eykst hagkvæmni í rekstri, þau munu eyða minni olíu, aflameðferð og nýting verður betri, rekstraröryggi eykst og viðhaldskostnaður mun lækka,“ segir í fréttinni.

Það er skipasmíðastöðin Celiktrans Deniz Insaat Ltd. Sti., Tuzla, Tyrklandi sem mun annast smíði togaranna en fyrir er stöðin að smíða tvö uppsjávarskip fyrir HB Granda.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK