Umdeilda en jafnframt vinsæla bifreiðaþjónustan Uber hafði betur fyrir dómstólum í Þýskalandi í dag þegar lögbanni sem lagt hafði verið á þjónustu þeirra þar í landi var aflétt.
Dómstóll í borginni Frankfurt taldi enga þörf vera á lögbanninu og getur Uber því hafið starfsemi að nýju. Baráttunni fyrir dómstólum er þó ekki lokið þar sem enn á eftir að taka fyrir mál Félags leigubílsstjóra gegn þeim en félagsmenn telja þjónustuna skorta tilskilin leyfi fyrir starfseminni.
Þjónusta þeirra virkar þannig að viðskiptavinir geta pantað sér bíl í gegnum app í símanum, fyrir mun lægri fjárhæð en það kostar að taka hefðbundinn leigubíl. Höfuðstöðvar Uber eru í San Francisco í Bandaríkjunum.
Þrátt fyrir að lögbanninu hafi verið aflétt, þar sem brýn nauðsyn þótti ekki á því líkt og lög gera ráð fyrir, viðraði dómari efasemdir um viðskiptamódelið og sagði það vera andstætt lögum að standa í farþegaflutningum án þess að hafa til þess leyfi.
Fyrirtækið hefur verið starfandi í Þýskalandi frá árinu 2013 og er nú í fimm borgum, þar á meðal Berlín og Frankfurt.