Stefnt að nýrri umgjörð fasteignalána

mbl.is/Styrmir Kári

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman skýrslu um fyrirhugaða nýja umgjörð um veitingu fasteignalána til neytenda hér á landi en skýrslan er hugsuð til upplýsingar fyrir neytendur, lánveitendur, stjórnmálamenn og aðra þá sem málið varðar.

„Markmið skýrslunnar er að koma umræðu af stað um bestu framkvæmd við veitingu fasteignalána sem nýtast mun við gerð nýrrar innlendrar umgjarðar þar um. Nefnd, sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði í byrjun árs, hyggst skila frumvarpsdrögum til ráðherra fyrir næstu áramót með það að markmiði að frumvarp verði lagt fram á vorþingi 2015,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Stefnt sé að setningu nýrra heildarlaga um veitingu fasteignaveðlána til neytenda og að samhliða því verði felld út ákvæði úr núverandi lögum um sama efni. Við vinnuna sé meðal annars höfð hliðsjón af tilskipun Evrópusambandsins um fasteignaveðlán til neytenda, tilmælum Evrópska kerfisáhætturáðsins (ESRB) um ábyrgar lánveitingar og íslenskum aðstæðum.

„Við endurskoðun löggjafar á fjármálamarkaði, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi, hefur
sérstaklega verið horft til þess að bæta löggjöf um lánveitingar til neytenda vegna fasteignakaupa, enda eru slík lán oftar en ekki stærsta einstaka skuldbinding heimila á sama tíma og miðlun fjármagns til slíkra lánveitinga er eitt helsta hlutverk fjármálafyrirtækja og -markaða,“ segir m.a. í skýrslunni.

Skýrsla fjármála- og efnahagsráðuneytisins í heild

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK