Hrannar Pétursson, sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone, hefur tekið þá ákvörðun að hætta störfum hjá fyrirtækinu. Hann hefur starfað hjá Vodafone í sjö og hálft ár. Undir samskiptasvið heyra markaðsmál, starfsmannamál og lögfræðimál auk almanna- og fjárfestatengsla. Samkomulag hefur náðst um að Hrannar láti strax af störfum, segir í fréttatilkynningu.
Ábyrgð á málefnum samskiptasviðs færist til forstjóra þar til annað verður ákveðið.