Fjallað er um fyrirætlanir Wow Air um að hefja flug til Bandaríkjanna á næsta ári í Berlingske í dag undir fyrirsögninni Íslenskur auðkýfingur flýgur með þig til Bandaríkjanna fyrir 699 krónur (Islandsk rigmand vil flyve dig til USA for 699 kr.).
Blaðamaður Berlingske segir að ef þú heldur að Norwegian sé lággjaldaflugfélag þá ættirðu að hugsa þig um aftur. Það sé að minnsta kosti skoðun Skúla Mogensen, íslenska auðkýfingsins og eiganda Wow Air.
Í Berlingske er fjallað um fjárfestingar Skúla og að hann hafi fjárfest í fluggeiranum án þess að hafa áður komið nálægt þeirri atvinnugrein.