Stofna öndvegissetur um verndun hafsins

Frá Arctic Circle ráðstefnunni
Frá Arctic Circle ráðstefnunni Eggert Jóhannesson

Skrifað verður undir samning um stofnun Oceana á Arctic Circle ráðstefnunni í Hörpu kl. 17:00 í dag en Oceana er öndvegissetur sem ætlað er að vinna að útfærslu hugmynda um verndun hafsins með því að draga úr mengun með grænni tækni.

Oceana verður vettvangur samstarfs fyrirtækja, opinberra aðila og rannsóknarstofnana sem vilja vinna að hafverndarmálum á alþjóðavettvangi og geta kynnt sig og sína starfsemi sem vistvæna. Oceana hyggst nýta þá þekkingu sem er til staðar í háskólum, stofnunum og fyrirtækjum til að auka vitund og þekkingu á þeim breytingum sem gera má ráð fyrir í umhverfi hafsins á komandi árum vegna aukinnar skipaumferðar í íslenskri landhelgi og loftlagsbreytinga.

Oceana er ætlað að leiða til samstarfs er muni fjölga verðmætum störfum í tækni- og hugverkagreinum, draga að erlent rannsóknarfjármagn og stuðla um leið að verndun lífríkisins í hafinu í kringum landið.

Víðtækt samstarf

Verkefnið er sagt umfangsmikið og metnaðarfullt og er það er stutt af fjölmörgum aðilum, s.s. Umhverfis og auðlindaráðuneytinu, Reykjavíkurborg, Landsbankanum, Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Hafrannsóknarstofnun, Orkustofnun, Samtökum iðnaðarins, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Granda hf. og Clean Tech Iceland sem eru samtök fyrirtækja í grænni tækni, og fjölda tæknifyrirtækja.

Unnið verður að stefnumótun Oceana á næstu mánuðum en viðfangsefni samstarfsvettvangsins eru m.a.: Rannsóknir, þróun, framleiðsla og kynning á tæknilausnum sem stuðla að vernd hafsins, nýting rannsókna innan háskóla, opinberra stofnanna og fyrirtækja til að þróa nýjar tæknilausnir og viðskiptatækifæri sem nýtast til verndar hafsins. Samnýting tengslanets fyrirtækja til að koma íslenskum lausnum á framfæri og hagkvæm orkunýting, vöktun umhverfisgæða, endurnýjanlegir orkugjafar og leiðir til að koma í veg fyrir mengun hafsins. Þá er einnig stefnt að því að halda á lofti umhverfisvænum lausnum og sjónarmiðum og styðja með því við stefnu stjórnvalda um hreint haf og vernd lífríkis þess.

Formleg undirritun stofnsamningsins verður í Hörpu kl. 17:00 í Rímu A á jarðhæð hússins. Á eftir fylgir dagskrá þar sem fjallað verður um Oceana. Meðal ræðumanna verða Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Jón Ágúst Þorsteinsson stjórnarformaður Ark Technology og Ágústa Loftsdóttir vísindamaður á Orkustofnun.

Sigmundur Davíð á ráðstefnunni í dag.
Sigmundur Davíð á ráðstefnunni í dag. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK