Meta Promens á 61,6 milljarða

Höfuðstöðvar Promens.
Höfuðstöðvar Promens.

Breska félagið RPC Group hefur gert tilboð í allt útgefið hlutafé Promens Group, sem er dótturfélag Pormens hf. og heldur utan um allan rekstur þess.

Promens er í eigu Framtakssjóðs Íslands slhf. (FSÍ) og Eignarhaldsfélags Landsbankans ehf.

Tilboðsverðið felur í sér að heildarvirði félagsins sé 399 milljónir evra (61,6 milljarðar króna) og að virði hlutafjár sé 236 milljónir evra (36,5 milljarðar króna), sem greiðist í reiðufé við afhendingu, samþykki hluthafar tilboð RPC. 

Að sögn Hermanns M. Þórissonar, stjórnarformanns Promens, mun RPC greiða 236 milljónir evra fyrir Promens auk þess sem félagið yfirtekur skuldir þess og skuldbindingar, alls 399 milljónir evra.

RPC er líkt og Promens alþjóðlegur framleiðandi plastaumbúða fyrir matvælaiðnað, neytenda- og iðnaðarmarkað, samkvæmt fréttatilkynningu sem send var út nú í morgun.

Tilboð RPC er m.a. gert með fyrirvara um samþykki hluthafa RPC og viðeigandi stjórnvalda (þ.m.t. samkeppnisyfirvalda) í ákveðnum löndum. Promens hefur verið í eigu FSÍ (49,50%) og Landsbankans (49,91%) síðan árið 2011.

Haftaumhverfi gerir fjármögnun erfiða

Hermann M. Þórisson segir í fréttatilkynningu að hann styðji hugsanlegan samruna við RPC en Promens hafi metnað til að halda áfram uppbyggingu félagsins og færa starfsemi þess inn á nýja alþjóðamarkaði í samstarfi við núverandi og nýja viðskiptavini.

„Í því haftaumhverfi sem nú ríkir á Íslandi er vandasamt að fjármagna metnaðarfull markmið um alþjóðlegan vöxt. Ég styð hugsanlegan samruna við RPC og tel að í honum felist gott tækifæri fyrir félagið og starfsmenn þess og hyggst þess vegna mæla með tilboðinu við hluthafana,“ segir Hermann í tilkynningunni.

Herdís Dröfn Fjeldsted, varaformaður stjórnar Promens og framkvæmdastjóri FSÍ:

„Ég lít þetta tilboð jákvæðum augum og hyggst mæla með því við stjórn FSÍ. Ég tel að rekstur RPC og Promens falli vel saman og að með samruna fyrirtækjanna yrði til sterkt félag sem gæti byggt á þeim trausta grunni og nýtt sér þau vaxtartækifæri sem Promens hefur skapað sér á undanförnum árum,“ er haft eftir Herdísi í fréttatilkynningu.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og LOGOS lögmannsþjónusta eru ráðgjafar seljenda.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK