Bíða í röðum eftir kæstri skötu

Mörgum þykir skatan ómissandi á Þorláksmessu.
Mörgum þykir skatan ómissandi á Þorláksmessu. Ómar Óskarsson

Þrjú hundruð manns koma saman í hádeginu á Hótel Sögu á morgun til þess að snæða kæsta skötu. Fullbókað hefur verið á hverju ári í áratugi.

Hörður Sigurjónsson, gæða- og sölustjóri á Hótel Sögu, segir það alltaf vera sömu hópana sem hittast yfir skötunni á hverju ári. „Þegar ég geng yfir salinn í lok hádegisverðarins bóka menn aftur að sama tíma að ári,“ segir hann. Boðið er upp á hefðbundna kæsta skötu og tindabikkju ásamt hamsatólg og tilheyrandi meðlæti.

Hörður segir flesta í skötuveislunni vera Íslendinga og mæta hótelgestir síður í borðhaldið. Gestirnir kvarta þó ekki yfir lyktinni eftir að hætt var að sjóða skötuna í pottum. „Það er allt annað að elda þetta í ofninum þar sem lyktin heldur sér þar,“ segir Hörður léttur í bragði.

Stærsti dagur ársins í Múlakaffi

Einnig er von á mörg hundruð manns í skötu í Múlakaffi á morgun og segir Jóhannes Stefánsson, eigandi veitingastaðarins, að um stærsta dag ársins hjá þeim sé að ræða. Hann segir hundruð manna hafa hringt í þeirri von að taka frá borð en ekki er hins vegar tekið við pöntunum. „Það er alltaf komin röð fyrir klukkan ellefu þegar við opnum dyrnar,“ segir Jóhannes sem var í óðaönn að undirbúa morgundaginn þegar mbl náði af honum tali. „Staðurinn er alltaf troðfullur frá því að við opnum og þar til við lokum klukkan átta,“ segir hann.

Mbl greindi frá því í október að ekki yrði boðið upp á skötu á Hótel Borg á þessu ári sökum framkvæmda, en hlaðborðið hefur verið haldið á staðnum í fjölda ára og verið gríðarlega vinsælt. Verður hefðin þó tekin upp að nýju á næsta ári.

Samkvæmt könnun MMR ætla 38% Íslendinga, eða um 93 þúsund manns, að borða skötu á Þor­láks­messu.  

Fulltrúi yngri kynslóðarinnar bragðar á skötu á Sægreifanum á Geirsgötu …
Fulltrúi yngri kynslóðarinnar bragðar á skötu á Sægreifanum á Geirsgötu þar sem árlega er boðið upp á réttinn á Þorláksmessunni. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK