Toyota hefur fetað í fótspor Tesla og opnað á 5.680 einkaleyfi tengd rannsóknum og þróun vetnisbíla.
Elon Musk, stofnandi og eigandi Tesla, opnaði á öll einkaleyfi fyrirtækisins á rafbílatækni og þróun þess.
Það er mat stjórnenda Toyota að með þessu sé fyrirtækið að opna á enn frekari þróun á sviði vetnisbíla og segir Bob Carter, einn stjórnenda Toyota, þetta geta skapað aukin gæði fyrir samfélagið, verði þróunin hraðari.