Hópuppsagnir hjá Landsbankanum

Landsbankinn
Landsbankinn mbl.is/Hjörtur

Landsbankinn hefur sagt upp 43 starfsmönnum. Þar af starfa 30 manns í höfuðstöðvum bankans en að auki hefur ráðningasamningum fastráðinna starfsmanna í afgreiðslu bankans í Flugstöð Leifs Eiríkssonar verið sagt upp, en þar starfa 13 manns. Uppsögnin í Leifsstöð verður afturkölluð, haldi bankinn áfram að sinna fjármálaþjónustu í flugstöðinni eins og verið hefur.

Uppsagnirnar í höfuðstöðvum bankans ná til flestra sviða. Úrvinnsla ýmissa mála er tengjast hruninu er nánast lokið og m.a. þess vegna verða gerðar ákveðnar breytingar á skipulagi og mönnun bankans að því er fram kemur í tilkynningu. Þá segir að aukin áhersla á rafræna afgreiðslu erinda leiði til fækkunar og hagræðingar í bakvinnslu og hjá stoðsviðum.

Óvissa um fjármálaþjónustu í Leifsstöð

Ákvörðun um uppsögn starfsfólks í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er varúðarráðstöfun af hálfu Landsbankans vegna óvissu um framhald starfseminnar þar. Þjónustusamningi bankans var sagt upp á síðasta ári og tilkynnt að fjármálaþjónusta yrði boðin út og átti það að gerast á síðastliðnu hausti. Af því varð ekki og í lok árs var gerður viðauki við þjónustusamning Landsbankans sem fól í sér að afgreiðsla bankans yrði opin til 30. júní 2015. Óvissa ríkir því um það hver muni sinna fjármálaþjónustu í Leifsstöð eftir það.

Landsbankinn hefur rekið afgreiðslu í Leifsstöð allt frá opnun og hyggst taka þátt í útboði Isavia um bankaþjónustu þegar það verður auglýst.

Í tilkynningu kemur fram að hagræðingaraðgerðirnar falla undir skilgreiningu hópuppsagna vegna þess fjölda sem um ræðir og hefur viðkomandi yfirvöldum verið tilkynnt um þær.

Frétt mbl.is: Gæti orðið alþjóðlegt útboð

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK