Ný verslun á Hverfisgötu en samt ekki

Sól og Magnús munu tka þátt í HönnunarMars.
Sól og Magnús munu tka þátt í HönnunarMars. mbl.is/Árni Sæberg

Ný húsgagnaverslun prýðir nú Hverfisgötu og skemmtilegt útlit hennar ætti ekki að fara framhjá neinum. NORR11 er danskt húsgagnafyrirtæki sem parið Júlíana Sól Sigurbjörnsdóttir og Magnús Berg Magnússon opnuðu nú rétt fyrir jólin en lítið fór fyrir opnun verslunarinnar. Verslunin er í raun sýningarrými ásamt netverslun og geta viðskiptavinir komið og skoðað og farið svo heim og verslað á netinu.

„Það sem er gaman við NORR11 er að þetta er eina sýningarrýmið á Íslandi sem hefur aðeins eitt merki. Verslunin er með þrjú sýningarrými í Danmörku, eitt í Berlín og var að opna í London líka. Að sjálfsögðu er hægt að kaupa minni hluti beint úr búðinni en hugmyndin er sú að hafa þetta þægilegt fyrir viðskiptavininn sem getur þá verslað á netinu og fær vörurnar sínar sendar heim í stofu samdægurs,“ segir Magnús.

„Við viljum líka hafa þetta lifandi rými, ef fólk vill nýta það til að kynna vörur eða annað þá er hægt að leigja rýmið. Við viljum hafa eitthvað í gangi hér reglulega og hafa þetta notalegt umhverfi.“

NORR 11 er flott að utan sem innan.
NORR 11 er flott að utan sem innan. mnl.is/Árni Sæberg

Sól og Magnús bjuggu í New York þar sem Sól stundaði nám við Parsons-háskólann og var markmiðið fyrst að opna búðina þar. „Við vorum búin að fylgjast með þessu merki í smátíma. Okkur langaði að opna NORR11 í New York, sérstaklega í Williamsburg, því skandinavísk hönnun er mjög vinsæl þar. Við nálguðumst fyrirtækið með þá hugmynd í maganum,“ segir Sól. „Hins vegar er fyrirtækið það ungt að þeir sáu ekki fram á að það myndi virka strax. Þá stungu þeir upp á því að við myndum opna á Íslandi og eftir að hafa skoðað markaðinn hér, leist okkur vel á það.“

Lestu meira í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK