Farþegum Icelandair fjölgar

Farþegum Icelandair fjölgar ört.
Farþegum Icelandair fjölgar ört. mbl.is/Júlíus

Í febrúarmánuði flutti Icelandair yfir 143 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 24% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára í febrúar nam 19%. Sætanýting var 77,7% og jókst um 4,5 prósentustig á milli ára og segir í tilkynningu frá félaginu að hún hafi aldrei verið meiri í febrúar áður.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um tuttugu þúsund í febrúar sem er fækkun um 2% á milli ára. Framboð félagsins í febrúar dróst saman um 6% samanborið við febrúar 2014. Sætanýting nam 74,3% og jókst um 4,1 prósentustig á milli ára.

Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði jafnframt um 7% á milli ára. Þá drógust fraktflutningar saman um 0,7% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 10% miðað við febrúar í fyrra og var herbergjanýting 79,9%, en hún nam 72,6% í febrúar í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK