Draumur um veitingavagn rættist

Fyrsti viðskiptavinurinn, María S. Þorbjörnsdóttir, ásamt Sif Haraldsdóttur, einum eigenda …
Fyrsti viðskiptavinurinn, María S. Þorbjörnsdóttir, ásamt Sif Haraldsdóttur, einum eigenda vagnsins. Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari í bakgrunni.

Rekstur Fish & chips-vagnsins hófst í Vesturbugt við Reykjavíkurhöfn um helgina. Þar með rættist draumur eigendanna, sem á sínum tíma bjuggu í Bretlandi, seldu íslenskan fisk til fish & chips-veitingastaða og voru þar fastagestir sjálfir.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Hráefnið er sjófrystur þorskur, sem togarinn Arnar frá Skagaströnd færir að landi. Annað tilheyrandi matargerðinni er flutt inn frá Bretlandi: Efni í fiskhjúp, steikarfeiti, franskar kartöflur, baunastappa, maltedik og fleira.

 Fish & chips-vagninn verður í Vesturbugt (á milli gamla slippsins og sjóminjasafnsins) á daginn frá kl. 11 til 21 en á Lækjartorgi frá kl. 22 fram á nótt. 

Stofnendur og eigendur Fish and chips-vagnsins eru þrír félagar sem störfuðu allir á sama tíma við að markaðssetja og selja íslenskan fisk í Hull, ásamt fjölskyldum sínum: Benedikt Sveinsson, Höskuldur Ásgeirsson og Pétur Björnsson. Benedikt var forstjóri og Höskuldur framkvæmdastjóri Iceland Seafood en Pétur rak eigið fisksölufyrirtæki, Ísberg.

Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari var eigendum vagnsins innan handar við undirbúning og fyrstu skref sjálfrar starfseminnar. Þeir Höskuldur fóru til Bretlands og lærðu réttu handtökin við matseldina hjá landssamtökum fish & chips-veitingastaðanna í Bretlandi (National Federation of Fish Friers). Íslenski Fish & chips-vagninn var jafnframt tekinn inn í samtökin og þau aðstoða við rekstur þessa breska matarmenningarsprota á Íslandi.

Fish & chips er sannkallaður þjóðarréttur Breta. „Fæstir Íslendingar gera sér líklega grein fyrir því að hráefnið er íslenskt að stórum hluta. Þetta er hvorki meira né minna en stærsti einstaki markaður veraldar fyrir þorsk og ýsu frá Íslandi,“ segir í fréttatilkynningu.

Ætla má að árlega séu notuð séu um 70.000 tonn af fiskflökum í „fisk & franskar“ á Bretlandseyjum.

Tveir eigenda vagnsins með fyrstu tveimur viðskiptavinunum. Frá vinstri: Benedikt …
Tveir eigenda vagnsins með fyrstu tveimur viðskiptavinunum. Frá vinstri: Benedikt Sveinsson, Höskuldur Ásgeirsson, María S. Þorbjörnsdóttir og Þórir Haraldsson,
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK