Hlutabréfavísitala GAMMA aldrei hærri

AFP

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 1,7% í dag í 2,1 milljarða króna viðskiptum. Vísitalan endaði daginn í 296,459 stigum og hefur aldrei mælst hærri frá upphafi, en hún var stillt á 100 í lok árs 2008.

Hlutabréf í Icelandair Group hækkuðu mest allra félaga í dag, eða 3,48% í 636 milljóna króna viðskiptum.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,5% í dag í 15,8 milljarða viðskiptum.

Þá hækkaði skuldabréfavísitala GAMMA um 0,2% í dag í 13,6 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,1% í eins milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,8% í 12,7 milljarða viðskiptum.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði lítillega í dag í 20 milljóna króna viðskiptum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK