Stjórn Fjarskipta hf. hefur tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins.
Endurkaupin munu að hámarki nema 10.300.000 hlutum eða 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu., en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki meira en 400 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 31. desember 2015 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Á aðalfundi félagsins hinn 19. mars sl. var samþykkt að heimila félaginu kaup á eigin hlutum allt að 10% af hlutafé félagsins.
í tilkynningu frá Fjarskiptum segir að fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans muni hafa umsjón með framkvæmd áætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.
Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 321.267 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf. í júní 2015.
Verð fyrir hvern hlut skal vera að hámarki hæsta verð síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.
Viðskipti Fjarskipta hf. með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram