2.173 fyrirtæki stofnuð á einu á ári

Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum byggingastarfsemi og mannvirkjagerð
Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum byggingastarfsemi og mannvirkjagerð mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá júlí 2014 til júní 2015, hefur fjölgað um 11% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.173 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, 48% á síðustu 12 mánuðum, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

744 fyrirtæki í gjaldþrot

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá júlí 2014 til júní 2015, hafa dregist saman um 12% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 744 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum framleiðsla hefur fækkað mest, eða um 24% á síðustu 12 mánuðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK