Hollenska flugfélagið KLM setti met í farþegafjölda í flugvélum flugfélagsins á sunnudag. KLM flaug með alls 93.048 farþega á sunnudeginum frá Schiphol flugvelli í Amsterdam til 139 áfangastaða flugfélagsins um víða veröld. Aldrei hafa fleiri farþegar flogið á einum sólarhring með flugfélaginu.
KLM er sem er elsta flugfélag heims en það var stofnað árið 1919. Flugfélagið er í samstarfi við Icelandair varðandi tengiflug frá Amsterdam út um allan heim, segir í fréttatilkynningu.