Ódýrir WOW miðar ruku út

„Gerið ykkur tilbúin fyrir 99 dollara flug til - skiptir ekki máli. Þú misstir af því,“ skrifar blaðamaður Boston Globe og vísar til tilboðs WOW air. Félagið bauð upp á flugfar frá Boston og Washington til Parísar og Amsterdam fyrir aðeins 99 dollara, eða um 13 þúsund krónur.

Boston og Washington bættust nýlega við leiðarkerfi WOW.

Samkvæmt frétt Boston Globe tilkynnti WOW föstudaginn 10. júlí sl. að félagið myndi bjóða upp á að minnsta kosti einn miða á 99 dollara frá Bandaríkjunum til Amsterdam á hverjum sunnudegi frá október til mars, fyrir utan helgarnar í kringum jól og áramót. 

Hinn 16. júlí benti blaðamaður Paste tímaritsins á að ódýrustu miðarnir til Amsterdam væru einungis eftir í nóvember 2015 og mars 2016. Þá voru ódýru miðarnir til Parísar einungis eftir í janúar og febrúar 2016. 

Í frétt Boston Globe frá 20. júlí sl. segir að nánast hver einasti ódýri miði sé uppseldur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK