Atvinnuleysi á evrusvæðinu var 10,9% í júlí sem er það lægsta sem mælst hefur frá því í febrúar 2012 samkvæmt upplýsingum frá hagstofu Evrópusambandsins, Eurostat.
Ef miðað er við öll ríki Evrópusambandsins var meðalatvinnuleysið 9,5% sem er það lægsta sem mælst hefur síðan í júní 2011.