Flugmiðinn lækkar um 6,5%

WOWair er með lægra fargjald á öllum flugleiðum sem félagið …
WOWair er með lægra fargjald á öllum flugleiðum sem félagið á sameiginlegt með Icelandair að undantekinni Kaupmannahöfn þar sem Icelandair er 10% ódýrara. Munurinn er yfirelitt 23% Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Að meðaltali hefur verð á flugferðum frá Íslandi lækkað um 6,5% á milli mánaða en Helsinki sker sig úr með 46% verðhækkun á milli mánaða. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt Dohop um verð á flugi frá Íslandi næstu vikur og borið saman verð til áfangastaða þar sem samkeppni er á markaðnum.

Mesta hækkun á flugfaragjaldi milli mánaða er til Helsinki en hún er um 46%. Þegar litið er á mestu lækkun á milli mánaða þá er Dusseldorf þar með 29% lækkun. En í heild var um 6,5% lækkun á meðalverði milli mánaða.

Ódýrast að fljúga til Óslóar næstu vikur

Þegar horft er hvert ódýrast sé að fljúga næstu vikur kemur í ljós að Norwegian býður upp á ódýrasta flugmiðann eða að meðaltali 29.936 kr. til Óslóar. Icelandair býður upp á næst ódýrasta miðann að meðaltali 32.710 kr. Dýrasti flugmiðinn á listanum er til New York og er það flug með Icelandair sem kostar að meðaltali 92.172 kr. á þessum tíma. 

Mestur verðmunur á einum áfangastað er á flugi til Helsinki þar sem tvö flugfélög eru með reglulegt áætlunarflug. Verð Finnair er 40,5% hærra en hjá keppinautnum Icelandair á þessari leið. Flugfélögin tvö eru einu flugfélögin sem fljúga beint til Helsinki.

WOWair nánast alltaf ódýrara en Icelandair

„Ef litið er á íslensku flugfélögin Icelandair og WOWair og bornar saman þær flugleiðir þar sem þau eru í samkeppni sjáum við að WOWair er með lægra fargjald á þeim öllum að undantekinni Kaupmannahöfn þar sem Icelandair er 10% ódýrara. Að meðaltali eru flugmiðar WOWair um 23% ódýrari en hjá Icelandair. Flugfélögin eru í samkeppni á eftirfarandi áfangastöðum: París, Boston, London, Amsterdam og Kaupmannahöfn,“ segir í tilkynningu frá Dohop.

Ef þú ætlar að fara til Helsinki þá þarftu að …
Ef þú ætlar að fara til Helsinki þá þarftu að búa þig undir að flugmiðinn hafi hækkað um 46% á milli mánaða AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK