Sjáðu flugvél smíðaða á 2 mínútum

Star Wars flugvel All Nippon Airways flugfélagsins er af tegundinni …
Star Wars flugvel All Nippon Airways flugfélagsins er af tegundinni Boeing 787-9. Myndin var tekin í síðustu viku. AFP

Í myndbandi CNN hér að neðan má sjá inn í verksmiðju Boeing þar sem verið er að smíða 787-9 Dreamliner flugvél á einungis tveimur mínútum. Myndabandinu hefur vitanlega verið hraðað þar sem verkið tekur nokkuð lengri tíma. 

Vélarnar eru nýjar úr framleiðslu Boeing og eru m.a. með stærri glugg­um en áður og um sex metrum lengri en þær sem nú eru í umferð, þ.e. 787-8, en koma má um fjörtíu fleiri farþegum fyrir í vélinni.

Í myndbandinu má sjá að vélin sem er verið að smíða mun fljúga undir merkjum British Airways en félagið fékk einmitt fyrstu slíku vélina afhenta í lok september. 

Frétt mbl.is: Fer næstum lóðrétt í loftið

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK