Flugvélar Icelandair eyða 26% meira eldsneyti á hvern farþega í flugi yfir Atlantshafið en vélar Norwegian.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem fjallar um eldsneytiseyðslu 20 umsvifamestu flugfélaganna á flugleiðinni yfir Atlantshafið.
Muninn á eldsneytiseyðslu flugfélaganna má fyrst og fremst skýra með vísan til aldurs vélanna. Icelandair hyggst taka nýjar vélar í notkun sem eyða minna eldsneyti, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þetta efni í Morgunblaðinu í dag.