Lagt er til af meirihluta fjárlaganefndar Alþingis að fjárheimild Atvinnuleysistryggingasjóðs lækki um 500 milljónir króna vegna endurmats á útgjöldum sjóðsins. Kemur þetta fram í nefndaráliti um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2015.
Fram kemur í áliti fjárlaganefndar að Hagstofa Íslands hafi gert ráð fyrir 3,2% atvinnuleysi á árinu 2015 í forsendum fjárlaga. Nú er hins vegar gert ráð fyrir minna atvinnuleysi eða 3% og lækka útgjöld sjóðsins af þeim sökum um 500 milljónir króna.
Í júlí á þessu ári voru, samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands að jafnaði 197.500 á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði. Jafngildir það 84,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 191.200 starfandi og 6.300 án vinnu og í atvinnuleit.