Líflegri jólaverslun en í fyrra

Verslun fyrir jólin ferfyrr af stað en fyrir síðustu jól
Verslun fyrir jólin ferfyrr af stað en fyrir síðustu jól

 Verslun fyrir jólin virðist vera líflegri nú og fara fyrr af stað en fyrir síðustu jól. Í úttekt Rannsóknarseturs verslunarinnar fyrir Samtök verslunar og þjónustu kemur fram að kaupmenn merkja aukningu í sölu allra vöruflokka, jafnt sérvöru sem dagvöru, raftækja og varnings fyrir heimilin.

Í tilkynningu frá samtökunum segir að sala á margvíslegri sérvöru sé töluvert umframt væntingar. Telja kaupmenn frekar mega rekja hana til bætts efnahags frekar en til jólanna þar sem söluaukningar hafi verið orðið vart áður en hefðbundin jólaverslun hófst. Þegar kemur að almennum dagvörum er hinsvegar annað uppi á teningnum þar sem merkja má töluverða aukningu í sölu sem ekki helst í hendur við söluverðsaukningu. Þykir það gefa sterka vísbendingu um að fólk spari við sig í þessum vöruflokki og kaupi ódýrari vörur til daglegra nota en á síðasta ári.

„Gríðarmikil aukning hefur orðið í sölu á margvíslegum vörum til heimilisins, svo sem húsgögnum, húsbúnaði og ljósum. Aukningin kemur bæði fram í sölu á smávöru sem og stærri hlutum. Þá virðist litlu skipta hvort um sé að ræða dýrari eða ódýrari vörur. Verslun með fatnað hefur ekki aukist jafn mikið og sala á annarri sérvöru. Þó greina kaupmenn söluaukningu á verðmeiri fatnaði s.s. yfirhöfnum og jökkum. Merkjanleg söluaukning er hjá þeim fataverslunum sem þegar hafa lækkað verð til samræmis við væntanlega niðurfellingu á tollum um áramótin,“ segir í tilkynningu SVÞ.

„Alla jafna er góð sala í verslunum á Íslandi í seinni hluta nóvember. Í ár varð mikil aukning milli ára og að mati kaupmanna er það einkanlega vegna útsala sem kenndar eru við Black Friday sem eru eftirtektarverðasta breytingin frá fyrra ári.“

Segir í lok tilkynningarinnar að kaupmenn telji breyttar reglur um kortatímabil geta seinkað verslun á aðventunni en nýtt tímabil hefst 12. desember, viku seinna en á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK