Hagvöxtur mælist 4,5%

Landsframleiðslan á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 jókst um 4,5% að raungildi borið saman við fyrstu níu mánuði ársins 2014. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld, sem eru samtala neyslu og fjárfestingar, um 6,2%. Einkaneysla jókst um 4,4%, samneysla um 0,9% og fjárfesting um 15,8%. Útflutningur jókst um 7,4% og innflutningur nokkru meira, eða um 10,9%. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Landsframleiðslan á 3. ársfjórðungi 2015, án árstíðaleiðréttingar, jókst um 2,6% frá sama fjórðungi fyrra árs en árstíðaleiðrétt landsframleiðsla jókst um 0,7% frá 2. ársfjórðungi 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK