Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags, færði í dag hluti sem hann á í félaginu fyrir rúmar 58 milljónir króna yfir í einkahlutafélagið Burðarbita ehf., sem Garðar er 100% eigandi að.
Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir að Garðar hafi selt 7.410.461 hluti á genginu 7,86. Kaupandinn var sem fyrr segir einkahlutafélagið Burðarbiti ehf.
Eik var skráð á markað í lok apríl á sölugenginu 6,80 krónur á hlut. Bréf félagsins hafa hækkað um átján prósent á árinu.
Á fyrstu níu mánuðum ársins námu rekstrartekjur félagsins rúmum 4,3 milljörðum króna og þar af voru leigutekjur 4,1 milljarður. Hagnaður fyrir tekjuskatt á sama tímabili nam 3,8 milljörðum króna.
Eik fasteignafélag sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Fjöldi eigna félagsins er yfir 100 og telja þær samtals yfir 273 þúsund fermetra miðað við lok september 2015