Kaupa dýrari gjafir en í fyrra

Veltuaukningin 10 til 20% meiri síðustu verslunardagana fyrir jól en …
Veltuaukningin 10 til 20% meiri síðustu verslunardagana fyrir jól en hún var á sama tíma á síðasta ári. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Jólaverslunin hefur verið ansi lífleg síðustu daga og samkvæmt úttekt Rannsóknarseturs verslunarinnar er veltuaukningin 10 til 20% meiri síðustu verslunardagana fyrir jól en hún var á sama tíma á síðasta ári.

Í úttektinni, sem er unnin fyrir Samtök verslunar og þjónustu, kemur fram að í aðdraganda jólanna hafi neytendur sótt verslanir heim í ríkari mæli en oft áður og jafnvel hafi aðsóknarmet verið slegin.

Heildarfjöldi gesta í verslunarmiðstöðvar nú fyrir jólin er álíka og hann var þensluárin 2006 til 2008. Neytendur virðast almennt kaupa dýrari gjafir nú en í fyrra án þess þó að um merkjanlegt óhóf sé að ræða að því er segir í tilkynningu frá SVÞ.

Bóksala hefur almennt verið góð nú fyrir jólin en bóksalar segja að eilítið minni sala sé í bókum ætluðum fullorðnum en nokkur aukning hefur verið í sölu barnabóka. Merkjanlegur samdráttur er í sölu hljóm- og mynddiska þar sem efnisveitur virðast hafa aukið hlut sinn á kostnað diskanna.

Raftæki seljast betur

Samkvæmt úttektinni virðast fjöldi vöruflokka seljast mun betur fyrir komandi jól en þau síðustu. Þar má nefna töluverða aukningu í sölu heyrnartóla og þráðlausra hátalara. Einnig hefur verið aukning í sölu raftækja, s.s sjónvarpa og heimabíókerfa. Ekki er ljóst hvort neytendur kaupi nú raftæki í meiri mæli en áður eða hvort verslunin hafi einfaldlega færst inn fyrir landsteinana í kjölfar lækkunar vörugjalda um síðustu áramót.

Samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar fór verslun stigmagnandi eftir því sem nær leið jólum að undanskilinn veltumikilli verslunarviku í lok nóvember þegar margar verslanir buðu afslátt eða tilboð.

Þrátt fyrir að hamborgarhryggur og hangikjöt séu vinsælustu réttirnir um jólin eykst sala á öðrum matvælum, s.s. kalkúni, nautakjöti og kjöti af kengúru, hreindýri og dádýri.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK