„Drekkið ekki úr krananum“

Vatnsflaskan er sérmerkt Adam hotel.
Vatnsflaskan er sérmerkt Adam hotel. Mynd af Facebook

Á Adam hotel við Skólavörðustíg 42 eru gestir hvattir til þess að drekka ekki vatn úr krananum. Þeim er bent á að drekka frekar sérmerkt flöskuvatn.

Í flöskunni er einn lítri af vatni en á verðlistanum kemur fram að tveir lítrar kosta fjögur hundruð krónur.

Myndir af flöskunni voru birtar í hópnum „Bakland ferðaþjónustunnar“ á Facebook þar sem spurt var hvort þetta væri almenn venja á hótelum í Reykjavík eða hvort eitthvað væri að vatninu á Skólavörðuholti.

Veitur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, hafa svarað þeirri spurningu á Facebook og segja öll eitt hundrað sýnin sem tekin voru til rannsókna úr vatnsveitu þeirra í Reykjavík á síðasta ári hafa verið pottþétt. Því sé engin ástæða til að vara við kranavatninu nema eitthvað sé bilað innanhúss.

Ekki náðist í eiganda Adam hotel við vinnslu fréttarinnar. 

Mælt er með að gestir drekki ekki úr vatnskrananum.
Mælt er með að gestir drekki ekki úr vatnskrananum. Mynd af Facebook
Vatnsflaskan kostar 400 krónur.
Vatnsflaskan kostar 400 krónur. Mynd af Facebook
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK