Pláss fyrir 10 þúsund Airbnb-gesti

Airbnb-íbúðir í Reykjavík voru alls 2.551 talsins í Reykjavík í …
Airbnb-íbúðir í Reykjavík voru alls 2.551 talsins í Reykjavík í apríl sl. Skjáskot

Meðalverð á Airbnb-íbúð í Reykjavík er 12.899 krónur. Skráðar íbúðir eru alls 2.551 talsins og geta þær samtals hýst 9.923 gesti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýju gagnvirku korti er sýnir hlutdeild Airbnb í Reykjavík.

Ráðgjafafyrirtækið Expectus tók kortið saman en það byggir á gögnum frá Airbnb og upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Á kortinu má meðal annars bera saman meðalverð eftir hverfum og skoða í hvaða götum flestar íbúðir eru. Gögnin eru frá apríl 2016.

Hér má skoða kortið.

Langflestar íbúðir eru á Laugavegi, eða 102 talsins, og geta þær samtals hýst 318 gesti. Meðalverð á gistingu á Laugaveginum eru 11.285 krónur fyrir nóttina, eða um 3.611 krónur á hvern gest.

Næstflestar íbúðir eru á Hverfisgötu og er Grettisgata í þriðja sæti.

Fjöldi íbúða á Airbnb eftir götum.
Fjöldi íbúða á Airbnb eftir götum. Skjáskot

Flestar íbúðir í miðbænum

Þegar litið er til mismunandi hverfa í borginni má sjá að flestar íbúðir eru í miðborginni, eða alls 112,6 á hverja eitt þúsund íbúa. Samtals er pláss fyrir 3.419 gesti í Airbnb-íbúðum í miðbæ Reykjavíkur.

Vesturbærinn er næstvinsælastur og eru þar um 33,6 Airbnb-íbúðir á hverja eitt þúsund íbúa en þær geta samtals hýst 2.168 gesti.

Í skýrslu um ferðaþjónustuna sem Greining Íslandsbanka birti í mars sl. kom fram að skráð gistirými í Reykjavík voru alls 2.681 í lok nóvember á síðasta ári. Samkvæmt talningu Expectus hefur þeim fækkað lítillega á fimm mánaða tímabili. Frá nóvember 2014 til nóvember 2015 fjölgaði þeim hins vegar um 126 prósent. 

2,22 milljarða tekur

Í sömu skýrslu kemur fram að á 12 mánaða tíma­bili frá og með nóv­em­ber 2014 voru heild­ar­tekj­ur aðila með skráð gist­i­rými á Airbnb í Reykja­vík um 2,22 millj­arðar króna en tekj­ur hót­ela á höfuðborg­ar­svæðinu á sama tíma­bil námu 14,5 millj­örðum króna. Nema tekj­ur í gegn­um Airbnb yfir 12 mánaða tíma­bil því rúm­lega 15 pró­sent­um af þeim tekj­um sem hót­el­markaður­inn aflaði á sama tíma­bili.

Frétt mbl.is: Airbnb gestgjafar með 2,2 milljarða

Samkvæmt þeim áformum sem hafa verið kynnt er gert ráð fyrir að hótelherbergjum í Reykjavík fjölgi samtals um 2.450 til ársins 2019 að því gefnu að öll verkefni komi til framkvæmda. Er það því nánast á pari við allar Airbnb-íbúðir í Reykjavík.

Flestar Airbnb-íbúðir í Reykjavík eru í miðbænum.
Flestar Airbnb-íbúðir í Reykjavík eru í miðbænum. mbl.is/Ómar Óskarsson

Svipað meðalverði utan háannatíma

Í skýrslu Íslandsbanka kemur einnig fram að meðalverð á hótelherbergi í Reykjavík er um 80 til 100 evrur á nótt utan háannatíma, eða um 11 til 14 þúsund krónur. Á háannatíma er meðalverðið um 110 til 167 evrur, eða 15 til 23 þúsund krónur.

Líkt og áður segir er meðalverðið á Airbnb-íbúð í Reykjavík 12.899 krónur og þar með svipað meðalverði á hótelherbergi utan háannatíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK