Bjartur seldur írönskum kaupanda

Bjartur siglir út Norðfjörð í sína síðustu veiðiferð hér við …
Bjartur siglir út Norðfjörð í sína síðustu veiðiferð hér við land. Ljósmynd/Guðjón B. Magnússon

Bjartur NK fór í gærmorgun í sína síðustu veiðiferðin sem skipið heldur í hér við land, en ráðgert er að afhenda hann írönskum kaupanda í Reykjavík um næstu mánaðamót. Á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að það hafi ríkt sérstök stemmning þegar skipið var búið í veiðiferðina en Bjartur hefur verið gerður farsællega út frá Neskaupstað frá árinu 1973. Bjartur er einn af hinum svonefndu Japanstogurum og var hann smíðaður fyrir Síldarvinnsluna í Niigata, hleypt af stokkunum þar 25. október 1972 og afhentur Síldarvinnslunni 12. janúar 1973. Til heimahafnar í Neskaupstað kom hann í fyrsta sinn 2. mars 1973 eða fyrir liðlega fjörutíu og þremur árum.

Skipstjóri á Bjarti í þessari síðustu veiðiferð er Steinþór Hálfdánarson en þegar vefur Síldarvinnslunnar hafði samband við hann í morgun var verið að toga í Berufjarðarál. „Hér er blessuð blíðan og algert stafalogn. Það er virkilega gott að taka síðasta túrinn á Bjarti í svona veðri. Við áætlum að koma í land um hádegi á sunnudag og þá kveðja menn um borð skipið með söknuði,“ sagði Steinþór.

Steinþór Hálfdanarson skipstjóri í brúnni á Bjarti fyrir síðustu veiðiferðina.
Steinþór Hálfdanarson skipstjóri í brúnni á Bjarti fyrir síðustu veiðiferðina. Ljósmynd/ Guðjón B. Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK