Kaupa ljós- og fjarskiptahluta 365

Fjarskipti hf. (Vodafone) og 365 miðlar hf. hafa undirritað samkomulag um einkaviðræður og helstu forsendur og skilmála kaupsamnings varðandi möguleg kaup á eignum og rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu 365 miðla hf. Kaupin eru háð ýmsum forsendum og fyrirvörum. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Veltan 23 milljarðar á ári

Undir ljósvakamiðla 365 miðla hf. falla bæði sjónvarps- og útvarpsrekstur félagsins. Helstu sjónvarpsstöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórásin og á útvarpssviðinu eru það meðal annars Bylgjan, FM957 og X-ið. Á fjarskiptamarkaði hafa 365 miðlar 3,4% markaðshlutdeild á farsímamarkaði og 12,6% á internetmarkaði samkvæmt nýjustu tölfræðiskýrslu Póst- og fjarskiptastofnunar. Gangi viðskiptin eftir verður til  fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi með um 23 milljarða króna veltu á ári.

Forsendur um kaupverð eru grundvallaðar á upplýsingum seljanda og þeim forsendum að rekstrarhagnaður hins keypta fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA), að viðbættum samlegðaráhrifum, geti numið allt að 2 milljörðum króna á ársgrundvelli.

Kaupverð allt að 3,4 milljarðar og yfirtaka á skuldum upp á 4,6 milljarða

Kaupverð, miðað við framangreindar forsendur væri allt að 3,4 milljarðar króna; greitt með 1,7 milljörðum króna í reiðufé annars vegar og 32.380.952 hlutum í Fjarskiptum hf. hins vegar, auk yfirtöku vaxtaberandi skulda að fjárhæð 4,6 milljarðar króna. Við útreikning á fjölda hluta er miðað við gengið 52,5 kr. á hlut sem fæli í sér 16,7% álag á dagslokagengi Fjarskipta hf. hinn 30. ágúst 2016. Þar sem viðskiptin myndu fela í sér kaup á ákveðnum eignum og rekstri tækju Fjarskipti hf. m.a. ekki yfir mögulega áhættu í tengslum við skattaleg málefni né leiguskuldbindingar 365 miðla hf.

Kaupa ekki Fréttablaðið og visir.is

Eignir 365 miðla hf. sem undanskildar eru í viðskiptunum samkvæmt samkomulaginu eru Fréttablaðið og visir.is. 365 miðlar hf. munu halda áfram rekstri fréttastofu og verður samið um miðlun efnis milli aðila eftir því sem við á.

Í fréttatilkynningu kemur fram að þar sem um keppinauta á markaði er að ræða þá hefur  kaupandi enn sem komið er haft aðgang að takmörkuðum upplýsingum um hið selda.

„Samkomulag þetta er því háð ýmsum forsendum og skilyrðum, þar á meðal að metinn rekstrarhagnaður og horfur í rekstri byggist á forsendum sem eru ásættanlegar að mati kaupanda eftir framkvæmd áreiðanleikakönnunar, auk samþykkis Samkeppniseftirlitsins og eftir atvikum annarra eftirlitsaðila. Nánar verður gerð grein fyrir viðskiptunum ef endanlegur kaupsamningur kemst á eða ef viðræður aðila falla niður. Gangi viðskiptin eftir má gera ráð fyrir að gengið verði endanlega frá kaupunum á fyrri hluta ársins 2017,“ segir í tilkynningu.

 Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, segir í tilkynningu:

„Stórt skref hefur nú verið stigið í að skoða möguleg kaup á ljósvakamiðlum og fjarskiptaþjónustu 365 miðla. Við sjáum samþættingu fjarskipta og fjölmiðlaveitna víða erlendis þar sem Vodafone á Nýja-Sjálandi og Hollandi hafa nú nýverið sameinast leiðandi fjölmiðlaveitum á þeirra markaði. Um spennandi verkefni er að ræða þó að of snemmt sé að segja til um hver endanleg niðurstaða verður. Við munum nýta næstu mánuði vel til þess að kanna hvort forsendur kaupanna standist." 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK