Ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps

Þorsteinn Gunnarsson.
Þorsteinn Gunnarsson. Af vef Grindavíkur

Þorsteinn Gunnarsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps en alls bárust 23 umsóknir um starfið. 

<span>Ráðningin var gerð í samstarfi við Capacent sem hafði umsjón með úrvinnslu umsókna, segir í frétt <a href="http://www.640.is/is/frettir/thorsteinn-gunnarsson-radinn-sveitarstjori-skutustadahrepps" target="_blank">640.is.</a></span>

Þorsteinn hefur í tæp 9 ár starfað hjá Grindavíkurbæ, fyrst sem upplýsinga- og þróunarfulltrúi og svo sem sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og hefur því víðtæka reynslu innan stjórnsýslunnar.

Hann starfaði um árabil í fjölmiðlum, m.a. á Stöð 2. Hann er með meistarapróf í verkefnisstjórnun (MPM) og diplóma og í opinberri stjórnsýslu og lærði fjölmiðlafræði í Svíþjóð á sínum tíma.

Þorsteinn hefur setið í fjölmörgum nefndum og ráðum, m.a. í stjórn Ferðamálasamtaka Reykjaness og Reykjanes Geopark. Eiginkona hans er Rósa Signý Baldursdóttir grunnskólakennari og eiga þau þrjú börn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK