Verði eitt besta rekstrarár í sögu félagsins

Icelandair Group mun tilkynna um tvo nýja áfangastaði á næstunni.
Icelandair Group mun tilkynna um tvo nýja áfangastaði á næstunni. mbl.is/Árni Sæberg

Áætlað er að farþegar Icelandair verði um 4,2 milljónir á næsta ári og muni fjölga um 450 þúsund frá yfirstandandi ári. Þá er gert ráð fyrir því að flugáætlun Icelandair verði um 13% umfangsmeiri á næsta ári en þessu ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair Group til kauphallarinnar. Þar segir að flug verði hafið til tveggja nýrra áfangastaða, sem kynntir verða á næstunni og ferðum fjölgað til fjölmargra borga í Norður-Ameríku og Evrópu. Alls verða 30 flugvélar nýttar til farþegaflugsins næsta sumar, en tvær Boeing 767 vélar bætast við flotann. Þessi vöxtur mun hafa í för með sér áframhaldandi eflingu ferðaþjónustunnar á Íslandi og þar með styrkja aðra starfsemi innan Icelandair Group.

Áætlað er að framboðnum sætiskílómetrum fjölgi um 13% milli ára, en flugferðum í millilandaflugi fjölgar um 8%. Munurinn skýrist annars vegar af auknu vægi flugs á lengri flugleiðum til Norður-Ameríku og hins vegar fjölgunar stærri flugvéla, en fjórar 262 sæta Boeing 767-300 breiðþotur verða í flotanum á næsta ári og 26 Boeing 757 þotur.

Leiðakerfi félagsins hefur margfaldast að umfangi frá árinu 2009. Þá voru farþegar um 1,3 milljónir, eða um 30% þess fjölda, 4,2 milljónum, sem gert er ráð fyrir á árinu 2017. Leiðakerfið hefur einkum byggt á tengingum á Keflavíkurflugvelli með morgunbrottförum til Evrópu og síðdegisflugi til Norður-Ameríku. Undanfarin ár hefur félagið verið að byggja upp annan tengibanka, með brottförum laust fyrir hádegi til Norður Ameríku og miðnæturbrottförum frá Íslandi til Evrópu. Sú uppbygging mun halda áfram á næsta ári.

 „Samhliða birtingu uppgjörs fyrir annan ársfjórðung í júlí lækkuðum við afkomuspá félagsins, aðallega vegna lækkunar meðalfargjalda. Samt sem áður gerum við ráð fyrir að árið 2016 verði eitt besta rekstrarár í sögu félagsins. Það er því vel í stakk búið til að takast á við áframhaldandi innri vöxt,“ er haft eftir Björgólfi Jóhannssyni forstjóra Icelandair Group í tilkynningunni.

Hlutabréf í félaginu hafa hækkað um 1,9% í kauphöllinni í dag eftir að þau lækkuðu töluvert á föstudaginn.

Fyrir frétt mbl.is: Bréf í Icelandair Group falla í verði

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK