Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi um innköllun á 25 Prius bifreiðum árgerð 2016. Á heimasíðu Neytendastofu segir að innköllunin sé vegna spennu sem vantar í tengingu á barka í stöðuhemli. Ef spennuna vantar getur barkinn, við langvarandi endurtekna notkun, losnað frá hemlum í hjóli og stöðuhemlarnir orðið óvirkir.
Toyota mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.