Getur þrefaldast í verði ef flogið er heim sama dag

Sá sem kýs að fljúga með Icelandair út að morgni og heim sama kvöld borgar margfallt meira en sá sem gistir eina eða fleiri nætur. Ekki ert greitt meira fyrir að ferðast innan dagsins hjá lággjaldaflugfélögum.

Greint er frá þessu á vef Túrista.

Þar segir til dæmis að í dag myndi það kosta 127.505 krónur að kaupa far til London eftir tvær vikur, 9. nóvember, og heim um kvöldið. Þar af kostar morgunflugið til London 61.015 krónur en það lækkar niður í 38.515 krónur ef gist er eina nótt í London. Ef farþeginn dvelur hins vegar úti fram til sunnudagsins 13. nóvember er sætið í morgunflugið hins vegar orðið þrefalt ódýrara en það hefði verið ef heimferðin væri samdægurs.

Vitnað er í Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúa Icelandair, sem segir að fargjöld hjá flugfélaginu fari eftir bókunarstöðu, framboði og eftirspurn á hverjum tíma og dýrari fargjöld hafi yfirleitt í sér meiri sveigjanleika. „Við hvetjum gjarnan viðskiptavini til að velja fremur eina „vöru“ en aðra, t.d. að bjóða fram og til baka fargjöld á betra verði en einnar leiðar fargjöld, og svo framvegis. Það er gert til þess að ná fram sem bestri nýtingu flugsæta,“ er haft eftir Guðjóni.

Fleiri valkostir með aukinni samkeppni

„Að verðleggja farmiða með þessum hætti hefur lengi tíðkast í ferðageiranum þó dregið hafi úr þessu með tilkomu lággjaldaflugfélaganna. Stjórnendur þeirra hafa nefnilega ekki tekið upp þennan sið og verðskrár margra hefðbundinna flugfélaga hafa lagað sig að breyttum markaði,“ segir í frétt Túrista. Er bent á að farþegi sem flýgur með SAS frá Kaupmannahöfn til London þann 9. nóvember borgi það sama fyrir morgunflugið hvort sem hann kemur heim um kvöldið, næsta dag eða eftir nokkrar nætur. Sama á við hjá hinu hollenska KLM en hins vegar eru verðskrár British Airways og Lufthansa með álíka sniði og hjá Icelandair samkvæmt athugun Túrista.

Bent er á að með aukinni samkeppni í flugi til og frá Íslandi bjóðist farþegum fleiri valkostir og til að mynda getur sá sem ætlar til London að morgni 9. nóvember og heim um kvöldið lækkað farið úr 127.505 kr. í 52.760 kr. með því að kaupa morgunflugið hjá WOW air en fljúga með Icelandair heim. Einnig er hægt að fljúga til Íslands frá London seinnipartinn með erlendum flugfélögum.

Hingað til hefur Icelandair verið eina flugfélagið með kvöldflug frá London allan ársins hring. Brátt verður þess háttar einnig í boði hjá WOW air yfir lengra tímabil en áður, og eins og staðan er í dag getur þessi aukna samkeppni lækkað ferðakostnaðinn hjá þeim sem þurfa út og heim aftur samdægurs. Þann 9. mars nk. kostar t.d. 19.997 krónur að fljúga með WOW báðar leiðir en sex sinnum meira með Icelandair, eða 127.505 krónur. Þó ber að hafa í huga að sá sem kaupir svo dýran miða getur valið sér sæti á Economy Comfort farrými, má taka með sér tvær töskur, fær fría máltíð og getur gert breytingar á ferðaáætluninni en fyrir það borgar viðkomandi nærri 108 þúsund krónur aukalega.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK