Vilja að rödd Icelandair heyrist í Evrópu

Icelandair hlakkar til að vinna með A4E.
Icelandair hlakkar til að vinna með A4E. mbl.is/Sigurður Bogi

Icelandair og A4E, Airlines for Europe, tilkynntu í dag að Icelandair væri þrettánda flugfélagið til þess að ganga í hin nýstofnuðu en um leið stærstu samtök evrópskra flugfélaga.

Samtökin, sem voru stofnuð í janúar á þessu ári, eru með höfuðstöðvar í Brussel í Belgíu, en markmið þeirra er að vinna að hagsmunum flugfélaga á evrópskum vettvangi.

„Við hlökkum til að vinna með A4E að helstu hagsmunamálum evrópskra flugfélaga og evrópskra flugfarþega, svo sem að draga úr kostnaði við evrópska flugvelli. Helstu stefnumál A4E hafa áhrif á daglegan rekstur okkar hjá Icelandair og við viljum að rödd okkar heyrist í Evrópu,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í tilkynningu vegna málsins.

Nú þegar hafa Aegean, airBaltic, Air France KLM, easyJet, Finnair, Icelandair, International Airlines Group (IAG), Jet2.com, Lufthansa Group, Norwegian, Ryanair, TAP Portugal og Volotea gengið til liðs við A4E en stefnt er að því að fjölga aðildarfélögum.

„A4E býður nýja þátttakendur velkomna til starfa, og þar sem helstu stefnumál okkar þurfa meiri athygli í Brussel og einstökum löndum Evrópu, sjá sífellt fleiri forsvarsmenn flugfélaga ástæðu til þess að sameinast í einum sterkum samtökum. Flugfélög Evrópu bjóða íbúum og fyrirtækjum álfunnar upp á frábæra ferðamöguleika og starfsemi þeirra stuðlar að hagvexti og fjölgun starfa,“ segir Thomas Reyneart, forstjóri A4E.

550 milljónir farþega fljúga árlega með aðildarfélögum A4E í um 2700 flugvélum, eða um 70% af farþegaflugi Evrópu. Heildarvelta þessara flugfélaga er yfir 100 milljarðar evra á ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK