158 þúsund ferðamenn í október

Um 74% ferðamanna í síðasta mánuði voru af tíu þjóðernum. …
Um 74% ferðamanna í síðasta mánuði voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 21,9% af heildarfjölda og Bretar næst fjölmennastir eða 19,7% af heild. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um 158 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu í október síðastliðnum samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða 59 þúsund fleiri en í október á síðasta ári. Aukningin nemur 59,7% milli ára.

Fjöldi ferðamanna hefur ríflega fjórfaldast frá árinu 2010 en mest hefur þó aukningin verið síðustu tvö ár en þá hefur fjöldinn meira en tvöfaldast. Heildarfjöldi ferðamanna frá áramótun er um 1,5 milljón eða 36,2% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á tímabilinu janúar til október árið 2015.

Flestir frá Bandaríkjunum

Um 74% ferðamanna í síðasta mánuði voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 21,9% af heildarfjölda og Bretar næst fjölmennastir eða 19,7% af heild. Þar á eftir fylgdu Kanadamenn (6,3%), Þjóðverjar (6,0%), Kínverjar (4,1%), Norðmenn (3,7%), Danir (3,4%), Frakkar (3,4%), Svíar (3,0%) og Hollendingar (2,2%).

Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í október eða um 18.600 manns og voru þeir meira en tvöfalt fleiri í ár en í fyrra. Bretum fjölgaði um sjö þúsund manns í október sem er um 20% aukning frá því í fyrra, Kanadamönnum um 6.400 sem er tæplega þreföldun frá því í fyrra og Þjóðverjum um 3.700  sem er um 63,9% aukning frá því í fyrra. Þessar fjórar þjóðir báru uppi 60,3% af aukningu ferðamanna milli ára í október.

Hlutfall Norðurlandabúa lækkað verulega

„Þegar litið er til fjölda ferðamanna í nýliðnum októbermánuði má sjá verulega fjölgun frá árinu 2010 eða ríflega fjórfalda aukningu. Fjöldi ferðamanna frá N-Ameríku hefur meira en áttfaldast, fjöldi Breta nærri fimmfaldast, fjöldi ferðamanna frá Mið- og S-Evrópu meira en fjórfaldast og fjöldi ferðamanna sem lenda í hópnum ,,annað“ tæplega sexfaldast,“ segir í fréttatilkynningu Ferðamálastofu. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna en þeir hafa nærri tvöfaldast á tímabilinu 2010-2016.

Samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2010 en í síðasta mánuði voru Norðurlandabúar 11,9% ferðamanna en hlutfall þeirra af heild hefur lækkað verulega síðustu ár. Hlutdeild N-Ameríkana hefur hins vegar farið vaxandi og hið sama má segja um hlutdeild þeirra sem lenda í hópnum ,,annað“. N-Ameríkanar voru 15,7% af heild árið 2010 en voru orðnir 28,2% árið 2016 og hlutdeild þeirra sem falla undir ,,annað“ voru 17,8% af heild árið 2010 en var komin í 24,5% árið 2016. Hlutdeild Breta og Mið- og S-Evrópubúa hefur verið á líku róli á tímabilinu 2010 til 2016.

Þá fóru um 50 þúsund Íslendingar fóru utan í október eða 5.300 fleiri en í október árið 2015. Um er að ræða 11,9% fleiri brottfarir en árið 2015.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK