Eik fasteignafélag kemur inn í OMX Iceland 8 vísitölu kauphallarinnar um áramót í stað HB Granda. OMX Iceland 8 vísitalan er endurskoðuð tvisvar á ári. Endurskoðuð samsetning tekur gildi 2. janúar 2017.
Samsetning OMXI8 vísitölunnar frá og með 2. janúar 2017 verður eftirfarandi:
Eik fasteignafélag hf. (EIK)
Eimskipafélag Íslands hf. (EIM)
Hagar hf. (HAGA)
Icelandair Group hf. (ICEAIR)
Marel hf. (MARL)
N1 hf. (N1)
Reitir fasteignafélag hf. (REITIR)
Síminn hf. (SIMINN)
„OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika á Nasdaq Iceland. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum á Nasdaq Iceland er hluti af vísitölunni,“ segir orðrétt í fréttatilkynningu frá Nasdaq.