Setja upp geymsluskápa í bílastæðahúsum

Einungis er hægt að greiða fyrir þjónustu Dótel með greiðslukortum …
Einungis er hægt að greiða fyrir þjónustu Dótel með greiðslukortum og eru geymsluskáparnir gerðir úr stáli og undir myndavélaeftirliti allan sólarhringinn.

Íslenska fyrirtækið Dótel sem sérhæfir sig í rekstri geymsluskápa fyrir farangur, hefur gert samstarfssamning við Bílastæðasjóð og geta viðskiptavinir fyrirtækisins því nýtt sér þjónustu þess í þremur bílastæðahúsum síðar á árinu. Skápar hafa verið settir upp í bílastæðahúsinu Traðarkoti við Hverfisgötu 20 en bráðlega verður einnig hægt að finna geymsluskápa fyrirtækisins í bílastæðahúsinu á Vesturgötu og í bílastæðahúsinu í Kolaportinu. 

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar er vitnað í Valgeir Bjarnason, framkvæmdastjóra Dótel, sem segir að mikil þörf sé fyrir fjölgun geymsluskápa þar sem þjónustan er mikið notuð af ferðamönnum og Íslendingum. „Skáparnir sem eru eins konar hótel fyrir dót viðskiptavina okkar eru nýttir í ýmislegt, til dæmis af þeim sem landið sækja heim og geyma farangurinn sinn á meðan þeir njóta þess sem Reykjavík og nágrenni hefur upp á að bjóða sem og heimamönnum á hraðferð út á land eða til útlanda sem þurfa kannski að koma pökkum til ástvina sinna. Eins hefur með aukningu á útleigu svokallaðra Airbnb íbúða fjölgað þeim tilfellum sem lyklar eru geymdir hjá okkur fyrir leigutaka íbúða en það gerir leiguferlið einfaldara fyrir bæði leigusala og leigutaka. Þetta er fljótleg, örugg og þægileg leið sem við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á“, er haft eftir Valgeiri. 

Þjónustuna er hægt að nýta á afgreiðslutíma bílahúsanna sem er alla daga ársins frá klukkan 7 til miðnættis.  

Einungis er hægt að greiða fyrir þjónustu Dótel með greiðslukortum og eru geymsluskáparnir gerðir úr stáli og undir myndavélaeftirliti allan sólarhringinn. „Við leggjum okkur fram við að hafa allt með öruggasta móti fyrir okkar viðskiptavini“, er haft eftir Valgeiri.

Dótel, sem var stofnað árið 2010, er einnig með geymsluskápa á BSÍ, Reykjavíkurflugvelli og í Holtagörðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK