Gripir sem sjást ekki annars staðar

„Það eru örfáir Íslendingar að kaupa þessa risastóru hringa sem við erum með,“ segir Kjartan Örn Kjartansson, eigandi gullsmíðaverkstæðisins Orr, sem hefur verið valin ferðamannaverslun ársins.

Markmiðið hafi aldrei verið að stíla inn á sérstakan markhóp, frekar að búa til skartgripi sem sjáist ekki annars staðar. Hann segir Rússa og Bandaríkjamenn oft kaupa óvenjulegar vörur.

Verslunin sem opnaði fyrst um aldamótin var lengst af í Bankastræti en í fyrra þurfti Kjartan að flytja verslunina ofar á Laugaveginn, gegnt Tryggingastofnun. Hann segir staðsetninguna hafa komið sér á óvart og að gönguumferðin sé meiri en hann gerði ráð fyrir.  

Það hefur margt breyst í miðbænum á þeim tíma sem Kjartan hefur staðið í rekstrinum en hann segist heilt yfir vera ánægður með hvernig þróunin hefur verið þó að einhver fjölbreytileiki hafi mögulega tapast í kjölfar aukins fjölda ferðamanna.

mbl.is kom við í Orr í tilefni af verðlaunaafhendingunni fyrr í dag.

Tilkynning vegna verðlaunanna:

Orr skartgripaverslun hlýtur Njarðarskjöldinn og er ferðamannaverslun ársins 2016. Verðlaunaafhendingin fór fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur í dag en þetta er í 21. skipti sem verðlaunin eru veitt.

Alls voru 11 verslanir tilnefndar til Njarðarskjaldarins í ár; Epal í Hörpu, Eymundsson í Austurstræti og á Laugavegi, Gilbert úrsmiður á Laugavegi, Gjóska á Skólavörðustíg, GÞ skartgripir og úr í Bankastræti, Handprjónasambandið á Skólavörðustíg, Islandia, í Bankastræti, Nordic Store í Lækjargötu, Upplifun í Hörpu og Orr gullsmiðir á Laugavegi.

Njarðarskjöldurinn er viðurkenning og hvatningarverðlaun sem veitt eru árlega til verslana eða verslunareigenda fyrir góða þjónustu og ferskan andblæ í ferðaþjónustu. Við tilnefningu ferðamannaverslunar ársins er leitast við að verðlauna þá verslun sem hefur náð hvað bestum söluárangri til erlendra ferðamanna milli ára. Horft er til markaðs- og kynningarmála, svo sem auglýsinga, vefjar og útlits almennt. Aðrir þættir eru einnig skoðaðir sérstaklega svo sem þjónustulund, afgreiðslutími, merkingar um endurgreiðslu virðisauka, lýsing, tungumálakunnátta starfsfólks og þekking á söluvörunum.

Í dómnefnd Njarðarskjaldarins sitja fulltrúar frá Reykjavíkurborg, Miðborginni okkar, Félagi atvinnurekanda, Samtökum verslunar og þjónustu, Kaupmannasamtökum Íslands, Global Blue á Íslandi og Premier Tax Free á Íslandi. Í rökstuðningi tilnefningarinnar kemur eftirfarandi fram:

„Orr gullsmiðir er afsprengi Kjartans Kjartanssonar. Verslunin sem er jafnframt gullsmíðaverkstæði hefur frá fyrstu tíð verið staðsett í miðborg Reykjavíkur. Lengi vel var verslunin staðsett neðarlega við Laugaveginn en fluttist nýlega um set og hefur haldið sínum takti. Hönnun Orr hefur allt frá fyrstu tíð verið feikilega vinsæl á meðal erlendra ferðamanna enda er hún einstök og efnisval og frágangur fyrsta flokks. Verkstæðið er staðsett í sama húsi og verslunin sem gefur aukna dýpt.

Þjónustustig og tungumálakunnátta starfsfólks er til fyrirmyndar sem og aðgengi að versluninni. Orr skartgripaverslun er björt og stílhrein með góða lýsingu þannig að vörurnar njóta sín til fulls. Stílhreint útlit, glæsileg hönnun, hæft starfsfólk sem hefur hvort í senn gaman af vinnunni og faglega þekkingu á vörunni gerir Orr að ákjósanlegum stað til verslunar fyrir erlenda ferðamenn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK