Tekur athugasemdum FME alvarlega

Stefnt er að því að allri vinnu af hálfu Borgunar …
Stefnt er að því að allri vinnu af hálfu Borgunar til að uppfylla kröfur FME um úrbætur verði lokið innan tveggja mánaða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Borgun tekur athugasemdum Fjármálaeftirlitsins við verklag og eftirlit vegna viðskipta við nokkra af viðskiptavinum fyrirtækisins á erlendum mörkuðum alvarlega. Þá mun fyrirtækið tryggja í samstarfi við FME að starfsemin fullnægi betur en nú er ýtrustu skilyrðum laga.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgun.

FME birti á heimasíðu sinni á föstudaginn frétt þess efnis að eftirlitið hafi gert at­huga­semd­ir við eft­ir­lit með pen­ingaþvætti og fjár­mögn­un hryðju­verka hjá Borg­un hf. FME krafðist viðeig­andi úr­bóta og vill að Borg­un skili aðgerðaáætl­un til stofn­un­ar­inn­ar þar sem sýnt er hvernig það hyggst bregðast við at­huga­semd­um og úr­bóta­kröf­um.

Mark­mið at­hug­un­ar­inn­ar var að kanna hvort verklag fé­lags­ins í tengsl­um við könn­un á áreiðan­leika upp­lýs­inga um viðskipta­menn, reglu­bundið eft­ir­lit, til­kynn­ing­ar­skyldu og innra eft­ir­lit væri í sam­ræmi við II., III. og V. kafla lag­anna.

Í niðurstöðum FME eru at­huga­semd­ir gerðar við að Borg­un hf. hefði í til­viki 13 viðskipta­manna af 16 ekki fram­kvæmt könn­un á áreiðanleika upp­lýs­inga um viðskipta­menn­ina með full­nægj­andi hætti áður en samn­ings­sam­bandi var komið á.

„Borgun tekur athugasemdum FME alvarlega og mun tryggja í samstarfi við FME að starfsemin fullnægi betur en nú er ýtrustu skilyrðum laga m.t.t. könnunar á áreiðanleika viðskiptamanna og skyldum þáttum, en lítið hefur reynt á túlkun þessara reglna, sem eru um ýmislegt matskenndar, í íslenskri stjórnsýslu- og réttarframkvæmd. Borgun hefur þess í stað reitt sig á reglur, túlkun og úttektir kortafélaganna Visa og MasterCard sem byggja á sömu Evrópulögum og hér um ræðir. Það er brýnt að taka fram að hvorki er um að ræða grun um peningaþvætti né fjármögnun hryðjuverka. Borgun hefur þegar hafist handa við að uppfylla fyrirmæli FME, meðal annars með því að segja upp viðskiptasambandi við nokkra aðila,“ segir Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar.

Stefnt er að því að allri vinnu af hálfu Borgunar til að uppfylla kröfur FME um úrbætur verði lokið innan tveggja mánaða.

Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar.
Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK