Afgangur umfram áætlun í Garðabæ

Frá Garðabæ.
Frá Garðabæ. Rax / Ragnar Axelsson

Rekstrarafgangur Garðabæjar á síðasta ári var mun meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Nemur hann alls 1,7 milljörðum króna og að frádregnum gatnagerðartekjum er hann 766 milljónir króna. Í áætlun ársins var gert ráð fyrir 312 milljóna króna rekstrarafgangi.

Við gerð ársreikningsins hafa gatnagerðartekjur vegna Sjálandshverfis og Akrahverfis, sem færðar hafa verið sem fyrirframinnheimtar tekjur í efnahag, verið tekjufærðar og nema samtals 973 milljónum króna.

Í afkomutilkynningu segir að betri rekstrarafkoma á árinu 2016 skýrist fyrst og fremst af fjölgun íbúa umfram það sem gert var ráð fyrir í áætlun. Í árslok 2016 voru íbúar Garðabæjar 15.250 og hafði fjölgað um 603 frá árinu 2015 eða um 4,2% en í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir 1,5% íbúafjölgun. Fjölgun íbúa umfram áætlun hefur í för með sér hækkun útsvarstekna.

Rekstur málaflokka er í góðu samræmi við fjárhagsáætlun og frávik í stærstu málaflokkum óveruleg.

Skuldahlutfall er 79% en var 101% árið 2015. Skuldaviðmið nemur 63%. Veltufé frá rekstri er 20,6%, veltifjárhlutfall 0,56 og eiginfjárhlutfall 56%.

400 milljónir í grunn- og leikskóla

Fjárfestingar á árinu 2016 námu 1.209 milljónum króna en áætlun gerði ráð fyrir 1.228 milljónum. Helstu framkvæmdir voru bygging nýs grunn- og leikskóla í Urriðaholti fyrir rúmlega 400 milljónir króna og er stefnt að því að starfsemi skólans hefjist í lok árs 2017. Kaupverð fasteigna sem keyptar voru nam 304 milljónum króna, framkvæmdir við gatnagerð námu um 650 milljónum, til íþróttamannvirkja var varið um 160 milljónum króna auk ýmissa annarra smærri verkefna.

Í afkomutilkynningu segir að sterk og öflug fjárhagsstaða Garðabæjar geri það að verkum að sveitarfélagið sé vel í stakk búið til að mæta þjónustu við nýja íbúa samhliða mikilli uppbyggingu í nýjum hverfum. Í því sambandi megi benda á byggingu skólahúsnæðis í Urriðaholtinu þar sem auk grunn- og leikskóla verður íþróttahús, kennslulaug og bókasafn.

Í þriggja ára áætlun bæjarins er m.a. gert ráð fyrir að byggt verði fjölnota íþróttahús austan Reykjanesbrautar, viðbyggingu við Álftanesskóla, byggingu íbúða fyrir fatlað fólk við Unnargrund, endurnýjun Hofsstaðavallar með gervigrasi auk ýmissa annarra verkefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK