„Enn segir seðlabankastjóri ósatt“

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja. Ljósmynd/Samherji

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri fyrirtækisins segja það ekki vera lagalega skyldu embættismanna að hafa fólk fyrir rangri sök. Það sé brot í starfi.

„Hvað sem líður orðum seðlabankastjóra að það sé ekki hans að taka ákvörðun um hvort mál fari „alla leið“ eða ekki þá er það hans ákvörðun hvort farið sé í húsleit, haldinn blaðamannafundur, mál séu kærð til lögreglu eða með hvaða hætti þeim er lokið af hálfu bankans. Sama gildir um setningu reglna og tillögur við lagabreytingar. Þessar ákvarðanir eru alltaf hans,“ segir í yfirlýsingu Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og Kristjáns Vilhelmssonar útgerðarstjóra fyrirtækisins.

Yfirskrift yfirlýsingarinnar er „Enn segir seðlabankastjóri ósatt“ og er tilefni hennar viðtal við Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, í sjónvarpsþættinum Eyjunni á ÍNN á dögunum. 

„Það er ekki lagaleg skylda embættismanna, eins og seðlabankastjóra hefur verið títtrætt um, að hafa fólk fyrir rangri sök. Það er brot í starfi. Fólk og fyrirtæki líta ekki á það sem tækifæri að vera kært. Slíkt er mjög íþyngjandi fyrir flesta,“ segir í greininni.

Þá segir að Samherji hafi ekki óskað eftir undanþágum frá gjaldeyrishöftum fyrr en í lok árs 2016 vegna lántöku erlendis þrátt fyrir að skilja hafi mátt seðlabankastjóra þannig að Samherji væri fyrirferðamikill í undanþágubeiðnum.

Vitnað er til orða Más aðspurður um mál Samherja í viðtalinu: „Ja ég get nú ekki talað um einstök mál, ég meina, það má eiginlega segja hvað með það í sjálfu sér. Það er oft, það er fullt af svona málum sem komu upp og hérna já, svo fara þau ekki alla leið. Það er ekki okkar að taka ákvarðanir um það, það er annarra.“

„Virk aðkoma að lagaklúðri“

Þorsteinn og Kristinn segja seðlabankastjóra oftsinnis hafa hundsað niðurstöður og rökstuðning sérstaks saksóknara í málum sem bankinn hafi kært og ýmist borið því við að málin hafi verið of flókin fyrir embættið eða um sé að kenna lagaklúðri sem rekja megi til annarra en bankans. „Í umræddu viðtali 23. mars sl. staðfesti seðlabankastjóri hins vegar að eitt af meginhlutverkum bankans sé smíði lagafrumvarpa. Verður það ekki skilið með öðrum hætti en að Seðlabankinn hafi átt virka aðkomu að því lagaklúðri sem seðlabankastjóri reynir ítrekað að kenna öðrum um.“

„Ef Seðlabankinn hefði virt niðurstöður og leiðbeiningar sérstaks saksóknara eða þær fjölmörgu ábendingar sem bankanum hafa borist í gegnum árin hefði vafalaust verið hægt að forða miklu tjóni og miska fjölmargra einstaklinga og lögaðila. Hafa skal í huga að bankinn hefur kært á annað hundrað einstaklinga og lögaðila frá setningu gjaldeyrishafta,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK