Hagnaður GAMMA tvöfaldast

Forstjóri Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA.
Forstjóri Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Hagnaður GAMMA Capital Management tvöfaldaðist milli ára og nam 846 milljónum króna eftir skatta á síðasta ári samanborið við 417 milljónir króna árið áður. Heildartekjur félagsins námu 2.156 milljónum króna en rekstrarkostnaður var um 1.059 milljónir króna.

Í tilkynningu frá GAMMA kemur fram að eigið fé félagsins í árslok nam 1.728 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 52,2%. Lágmarkskrafa um eigið fé verðbréfafyrirtækja er 8%. 

Á árinu 2016 voru tveir verðbréfasjóðir, sex fjárfestingasjóðir og 25 fagfjárfestasjóðir í rekstri hjá félaginu. Þrír nýir erlendir sjóðir voru stofnaðir á árinu og aðrir þrír sjóðir verða opnaðir á þessu ári. Eignir í stýringu hjá GAMMA námu rúmlega 115 milljörðum króna í lok árs 2016. Á árinu starfaði að meðaltali 21 starfsmaður hjá félaginu.

Þrír erlendir sjóðir á þessu ári

„Uppgjör ársins sýnir að rekstur GAMMA stendur traustum fótum. Félagið hefur vaxið jafnt og þétt frá stofnun árið 2008 og var með um 115 milljarða króna í stýringu um síðustu áramót. Rekstur sjóðanna gekk vel á síðasta ári og ávöxtun var góð í öllum helstu eignaflokkum. Skýrist sá árangur fyrst og fremst af sýn og trú GAMMA á fjárfestingum í íslenska hagkerfinu. Á sama tíma heldur viðskiptavinum áfram að fjölga,“ er haft eftir Gísla Haukssyni, stjórnarformanni GAMMA í tilkynningu.

Í ágúst á síðasta ári fékk GAMMA sjálfstætt starfsleyfi frá fjármálaeftirliti Bretlands og hefur starfsemin þar fjölgað fjárfestingatækifærum erlendis fyrir viðskiptavini samhliða losun gjaldeyrishafta. Þrír nýir erlendir sjóðir voru opnaðir í fyrra og þrír til viðbótar verða kynntir síðar á þessu ári. Ásamt hefðbundinni starfsemi kemur GAMMA rausnarlega að eflingu íslenskrar menningar og lista heima og erlendis ásamt því að taka þátt í öðrum samfélagslegum verkefnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK