Móðir Travis Kalanick, forstjóra skutlþjónustunnar Uber, lést í sjóslysi í Kaliforníu. Í frétt BBC um málið segir að foreldrar Kalanick, Bonnie og Donald, hafi verið á báti úti á vatni er hann sökk á föstudag.
Bonnie Kalanick var 71 árs. Talið er að báturinn hafi steytt á skeri og sokkið í kjölfarið.
Samkvæmt talsmanni Uber liggur Donald Kalanick þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir slysið.